
Pure North hlýtur Kuðunginn, umhverfisverðlaun.
Við hjá Pure North erum þakklát og stolt yfir að hafa hlotið Kuðunginn 2024, umhverfisverðlaun Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi störf að umhverfismálum. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa sýnt frumkvæði og árangur í náttúruvernd og sjálfbærni, og voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn fyrr í dag.
“Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Pure North sem handhafa Kuðungsins 2024 segir að fyrirtækið hafi með einstökum hætti markað sér sess sem leiðandi umhverfistæknifyrirtæki á Íslandi. Allt frá stofnun hafi fyrirtækið lagt áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og ábyrgð í úrgangsmálum.
Pure North hafi með nýtingu jarðhita við plastendurvinnslu náð að draga úr kolefnisspori vinnslunnar um 82% miðað við sambærilega framleiðslu í Evrópu, sem gerir endurunnið plast þeirra með því umhverfisvænasta sem finnst á markaði. Þá hafi Pure North náð að loka endurvinnsluhringrásinni með því að hefja framleiðslu á vörum úr plastinu sem fyrirtækið fái inn til endurvinnslu.
Metnaðarfulla vinna Pure North við þróun úrgangslausna sé ekki síður lofsverð, líkt og hugbúnaðurinn „Úlli úrgangsþjarkur”, sem nýtir gervigreind til greina úrgangsgögn fyrirtækja og sveitarfélaga, og móttöku- og flokkunarstöðin „Auðlind” séu til vitnis um. Segir í úrskurði dómnefndar að með samþættingu Auðlindar við hugbúnaðinn Úlla hafi „Pure North skapað fyrirmyndar umgjörð fyrir skilvirka úrgangsstjórnun og hringrásarhugsun á Íslandi.“
Við erum þakklát og stolt af þessari viðurkenningu og sjáum hana sem hvatningu til áframhaldandi nýsköpunar og samvinnu í þágu sjálfbærni – fyrir Ísland og komandi kynslóðir.