Umhverfisvæn plastbretti
Íslensk endurvinnsla
létt, sterkbyggð og
hagkvæm
vörubretti

Tímamót í hringrás plastnotkunar á Íslandi
Pure North hefur slegið nýjan tón í sjálfbærri plastframleiðslu á Íslandi með innlendri framleiðslu á fyrsta plastbrettinu úr plasti sem er endurunnið á íslandi. Með 82% lægra kolefnisspori er þetta stórt skref í átt að sjálfbærari framtíð.
Það sem gerir þetta að umhverfisvænasta brettinu er einstök endurvinnsluaðferð okkar, þar sem jarðvarmi og umhverfisvænir orkugjafar koma í stað hefðbundinna orkukræfra lausna í hefðbundinni endurvinnslu. Við erum fyrsta plastendurvinnslan í Evrópu til að hljóta alþjóðlega EPD-vottun (Environmental Product Declaration) sem staðfestir lægra kolefnisspor fyrir endurunna plastefnið frá okkur.
Framleiðsla brettisins markar nýjan kafla í hringrásarhagkerfi Íslands, þar sem plastúrgangur líkt og heyrúlluplast fær nýtt hlutverk í stað þess að verða úrgangur eða útflutningsvara. Með þessari nýsköpun drögum við úr plastmengun, minnkum þörfina fyrir innflutt plast og nýtum íslenskar auðlindir á ábyrgari hátt.

Endurunnið og framleitt í Hveragerði
