
Háskóli Íslands hefur jarðgerð
Háskóli Íslands hefur stigið stór skref í úrgangsmálum að undanförnu. Eftir ítarlega úrgangsúttekt með Pure North hafa þau nú útbúið flotta miðlæga flokkunarstöð. Þar hafa þau formlega hafið jarðgerð á lífrænum úrgangi og stígur stofnunin þar með stórt skref í átt að grænni framtíð. Verkefnið er liður í metnaðarfullri stefnu skólans um að draga úr kolefnisspori, auka staðbundna hringrás auðlinda og efla raunverleg áhrif í umhverfismálum. Með þessu verkefni verður Háskóli Íslands fyrirmynd annarra stofnana sem vilja sýna ábyrgð í verki.
Hvað felst í verkefninu?
- Lífrænum úrgangi frá mötuneytum og kaffistofum verður nú safnað sér við Háskólatorg og unnið í jarðgerð.
- Jarðgerðarvélin frá Pure North flýtir fyrir niðurbroti og tryggir góð gæði moltu.
- Moltan sem myndast verður nýtt af garðyrkjudeild á grænum svæðum á háskólalóðinni.
Saman í átt að grænna háskólasamfélagi
Framundan er uppbygging og fræðsla til nemenda og starfsmanna, þar sem áhersla verður á að tryggja rétta flokkun og virka þátttöku allra. Með sameiginlegu átaki getum við umbreytt úrgangi í verðmæti!
Til hamingju HÍ!