Pure North upp nýja RUNI frauðplastpressu hjá SORPU
Í síðustu viku settum við hjá Pure North upp nýja RUNI frauðplastpressu hjá SORPU í Gufunesi. SORPA var áður með eldri vél frá RUNI, en nýja lausnin er stórt skref fram á við hvað varðar afköst, rýmisnýtingu og sjálfvirkni.
Nýja vélin er meðal annars með 6 metra háum sílói, sem nýtir rýmið talsvert betur og er einnig mun sjálfvirkari en fyrri búnaður og getur því unnið að mestu sjálfstætt.
Við viljum þakka SORPU kærlega fyrir áframhaldandi traust og gott samstarf.
En af hverju er mikilvægt að þjappa og endurvinna frauðplast?
Frauðplast er að langmestu leyti loft og aðeins lítill hluti þess er plast. Óþjappað tekur það því gríðarlegt pláss í geymslu og flutningi miðað við raunverulegt magn hráefnis.
RUNI-vélin leysir þetta vandamál með því að þjappa frauðplastinu saman í brot af upprunalegu rúmmáli þess. Það þýðir minni geymsluþörf, færri flutninga og lægri kostnað, auk þess sem þjappaða efnið verður mun þægilegra til endurvinnslu og hægt er að nýta það aftur sem hráefni.
Um RUNI
Pure North er dreifingaraðili RUNI á Íslandi. RUNI er danskur framleiðandi sem hefur sérhæft sig í vélum og lausnum fyrir þjöppun og meðhöndlun úrgangs. Kjarninn í hugmyndafræði fyrirtækisins er „Turn waste to value“ að breyta úrgangi í verðmæti sem passar vel við okkar stefnu.
RUNI-lausnir eru hannaðar til að minnka umfang úrgangs, einfalda meðhöndlun hans og lækka geymslu- og flutningskostnað. Vélarnar eru notaðar fyrir fjölbreytta úrgangsstrauma og geta þannig hjálpað fyrirtækjum að gera úrgangsmeðhöndlun bæði hagkvæmari og umhverfisvænni.
Pure North selur og leigir fjölbreyttan búnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að draga úr kostnaði og umhverfisáhrifum, meðal annars baggapressur, jarðgerðarvélar og annan búnað til úrgangsmeðhöndlunar. Hafðu samband við
[email protected]
til að fá að vita meira eða skoðaðu úrvalið á
purenorth.is